Thursday, August 18, 2011

Hvar er sjónvarpsþátturinn minn?

Ég er kona.

Ég hef samt ekki áhuga á líkamsrækt. Mér finnst leiðinlegt að hlaupa. Ég hata líkamsræktarstöðvar. Ég gæti kannski hugsað mér að prófa jóga eða pilates en ég er ekkert að deyja úr spenningi.

Ég hef heldur ekki áhuga á snyrtivörum eða útliti. Ég mála mig ekki dags daglega (ég set ekki einu sinni á mig maskara!), ég hef aldrei komist upp á lagið með að nota skrilljón krem í fésið á mér og ég hef aldrei litað á mér hárið. Ég fæ ekki taugaáfall þó að hárin undir höndunum og á leggjunum séu tveimur sentimetrum of löng og flétta er það flóknasta sem ég kann að gera í hárið á mér.

Ef það að stunda kynlíf er það sama og að hafa áhuga á kynlífi þá get ég hakað við það áhugasvið - að öðru leyti höfðar nýr kvennasjónvarpsþáttur Skjás eins ekki til mín.

Þið spyrjið ykkur eflaust: ef þessi gella hefur EKKI áhuga á snyrtivörum, útliti eða líkamsrækt - hverju hefur hún þá áhuga á? Hún er nú einu sinni kona!

Svar: ég hef áhuga á fótbolta, kvikmyndum, bókmenntum, ferðalögum, tungumálum, dægurmenningu, stjórnmálum... já, og femínisma. Ég er femínisti.
(og ábyggilega öfgafullur femínisti af því ég er stundum með sjáanleg hár undir höndunum og mála mig ekki á hverjum degi - það hefur svo ekkert með femínisma að gera - ég er bara svona ég.)

Ég er sem sagt kona með að einhverju leyti karllæg áhugamál skv. staðalímyndum kynjanna (fótbolti, kvikmyndir, stjórnmál...). Ég er samt alveg jafnmikil kona fyrir því enda erum við ekki allar eins og við höfum ekki allar áhuga á sömu hlutunum - fyrirgefið mér ef þetta hljómar eins og einhver frekja en hvar er sjónvarpsþátturinn minn? Þáttur fyrir konur sem hafa áhuga á fótbolta (með kvenkynsþáttastjórnendum - ekki eins og á karlaveldinu Stöð 2 Sport), bókmenntum (líka með kvenkynsþáttastjórnendum - ekki eins og á karlaveldinu RÚV), stjórnmálum (af hverju skýtur Egill Helgason aftur upp kollinum) og öllu hinu sem við konur elskum - svona bara til þess að fagna fjölbreytileikanum og berjast gegn staðalímyndum kynjanna.